Móðir þroskaskertrar konu hefur verið ákærð fyrir líflátshótun gegn bocciaþjálfara dóttur sinnar. Þjálfarinn er grunaður um að hafa brotið gegn þroskaskertum konum sem hann þjálfaði og er mál hans nú komið á borði saksóknara eftir tæplega þriggja ára rannsókn hjá lögreglu.
Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Móðirin, Guðrún Karítas Garðarsdóttir, varð þess áskynja í ágúst síðastliðnum að maðurinn væri að reyna að setja sig í samband við dóttur hennar, sem er þroskaskert og æfði um tíma boccia undir handleiðslu mannsins. Guðrún brást ókvæða við og þusti inn á gólf vinnustaðar hans og hafði í hótunum við hann í vitna viðurvist.
Guðrúnu var birt ákæra í síðustu viku þar sem henni er gefið að sök að hafa sagt. „Ég skal drepa þig helvítið þitt,” og „jú víst, ég get látið drepa þig”. Síðari orðin á Guðrún að hafa haft uppi þegar brotaþoli lýsti efasemdum um hæfni hennar til manndrápa. Sjálf segist Guðrún ekki hafa sagt síðari orðin en gengst við því að hafa hótað manninum vegna samskipta hans við dóttur hennar.
Sagður hafa nýtt sér yfirburði sína
Í Fréttablaðinu segir að maðurinn hafi um árabil starfað sem bocciaþjálfari á Akureyri og á að hafa stofnað til náinna vináttusambanda við kvenkyns iðkendur íþróttarinnar. Hann er sagður hafa nýtt sér þær kynferðislega í krafti yfirburðastöðu sinnar gagnvart þeim og til dæmis útvegað þeim húsnæði til búsetu og þannig tryggt sér aðgengi að þeim.
Kæra vegna meintrar nauðgunar var lögð fram á hendur manninum árið 2015 og er rannsókn lokið hjá lögreglu og málinu verið vísað til héraðssaksóknara. Ákvörðun um ákæru á hendur manninum liggur ekki fyrir.