Minntust fórnarlamba umferðarslysa í gær
Fórnarlamba umferðarslysa var minnst í gær með einnar mínútu þögn, m.a. við bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík og Sjúkrahúsið á Akureyri. Slökkviliðið, undir forystu Jóns Knudsen varðstjóra, stóð fyrir minningarathöfn við FSA, ásamt lögreglu, félögum í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, starfsfólki slysadeildar, Rauða krossinum og aðstandendum. Sameinuðu þjóðirnar hafa frá árinu 1993 tileinkað þriðja sunnudag nóvembermánaðar minningu fórnarlamba umferðarslysa. Á hverju ári látast um 1,2 - 1,4 milljónir manna í umferðarslysum í heiminum og hundruð þúsunda verða fyrir varanlegum skaða.
Frá H-deginum svonefnda, þegar skipt var yfir í hægri umferð á Íslandi þann 26. maí 1968, hafa samtals 958 manns látið lífið í umferðinni hér á landi samkvæmt upplýsingum úr slysaskrá Umferðarstofu. Þess má geta að árið 2010 var skráður íbúafjöldi Blönduósbæjar um 900 manns og má því líta svo á að á þessum rúmu 43 árum hafi rúmlega fjöldi íbúa Blönduósbæjar látist í umferðinni hér á landi. Gera má ráð fyrir að á sama tímabili hafi allt að 9.000 manns slasast alvarlega í umferðinni.
Banaslys í umferðinni eru algengasta dánarorsök ungs fólks í heiminum í dag og það sem af er árinu hafa 12 manns látist í umferðinni hér á landi. Þar af er helmingur þeirra 17 ára og yngri. Fjórir voru 17 ára, ein 13 ára stúlka og eitt 6 ára gamalt barn. Í upplýsingum um algengustu dánarmein ungs fólks á Íslandi á aldrinum 17 - 26 ára kemur fram að á árunum 1999 til 2008 voru umferðarslys algengasta dánarörsök kvenna á þessum aldri og er hún tvöfalt algengari orsök en sjálfsvíg sem að er næst algengasta orsök.