Minkaveiðiátak í Eyjafirði

Frá því í mars á þessu ári hefur sérstakt minkaveiðiátak verið í gangi í Eyjafirði, á svæði sem nær yfir sveitarfélögin Dalvíkurbyggð, Arnarneshrepp, Hörgárbyggð, Eyjafjarðarsveit, Akureyrarkaupstað, Svalbarðsstrandarhrepp og Grýtubakkahrepp. Umhverfisstofnun hefur umsjón með veiðunum og hafa verið ráðnir veiðimenn til að sinna þeim. Svæðið afmarkast við austan- og vestanverðan Eyjafjörð frá botni og til norðurs að Kaldbaki að austan og að Ólafsfjarðarmúla að vestan, þar með taldir þverdalir, Hörgárdalur, Öxnadalur og Svarfaðardalur. Nefnd á vegum umhverfisráðuneytisins hefur umsjón með veiðiátakinu og er tilgangur þess að kanna möguleika á útrýmingu minks á tveim svæðum á landinu, Snæfellsnesi og Eyjafirði, með það í huga að ráðast í landsátak í framhaldinu gefi niðurstaða tilefni til. Samhliða veiðunum eru í gangi rannsóknir sem ætlað er m.a. að meta árangur veiðiátaksins og eru þær unnar af Náttúrustofu Vesturlands í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands.

Talið er að veiðar hafi gengið vel það sem af er árinu og hefur stóraukinn fjöldi gildra verið lagður á svæðinu auk þess sem minkaleit með hundum hefur verið meiri en áður. Þrátt fyrir þessar auknu veiðar eru einhverjir minkar sem hafa komist undan og læður náð að gjóta. Nú í ágúst fara hvolpar sem komist hafa á legg að verða sýnilegir og því mikilvægt að fá upplýsingar um hvar þeir sjást. Því vilja þeir sem að veiðiátakinu standa fara þess á leit við bændur og almenning að þeir láti vita ef sést til minka á ofangreindu svæði. Hægt er að hafa samband við Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar í síma 460 7900 og láta vita af því.

Nýjast