Minjasafnið á Akureyri hlaut Íslensku safnaverðlaunin

Starfsfólk og stjórnarformaður Minjasafnsins við verðlaunafhendinguna í dag. Mynd/aðsend
Starfsfólk og stjórnarformaður Minjasafnsins við verðlaunafhendinguna í dag. Mynd/aðsend

Íslensku safnaverðlaunin voru afhent í dag í þrettánda sinn en í dag er Alþjóðlegi safnadagurinn. Það var  Minjasafnið á Akureyri sem hlaut náð fyrir augum valnefndar og hlaut verðlaunin í ár.  Fimm söfn voru tilnefnd til verðlaunanna.

 Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. 
Hér að neðan má lesa umsögn valnefndar um Minjasafnið á Akureyri.

Minjasafnið á Akureyri – safn í tengslum við samfélagið

Minjasafnið á Akureyri er rótfast í eyfirsku samfélagi og hefur verið það frá stofnun árið 1962. Starfsemi þess er fagleg og fjölþætt. Það hefur sinnt söfnun og varðveislu menningarminja af mikilli alúð, með áherslu á söfnun ljósmynda sem er öflug samfélagslegstenging og samofin öllu starfi safnsins, einkum á síðustu áratugum.

Minjasafnið á Akureyri hefur á að skipa mjög hæfu starfsfólki sem af áhuga og metnaði hefur skipað því í fremstu röð minjasafna. Safnið hefur um árabil staðið mjög vel að fræðslu fyrir öll skólastig og skapað gott samstarf við skóla, uppeldisstofnanir og fleiri stofnanir og haldið fjölda fagnámskeiða fyrir nágrannasöfnin. Safnið hefur tekið virkan þátt í Eyfirska safnaklasanum frá stofnun hans árið 2005 og lagt mikla rækt við samstarf, með áherslu á alla aldurshópa. Minjasafnið á Akureyri er m.a. í samstarfi við Virk, Vinnumálastofnun, Fangelsismálastofnun og Akureyrarbæ. Í því samstarfi sinnir safnið vel samfélagslegu hlutverki sínu og aðstoðar einstaklinga við að koma jafnvægi á líf sitt um leið og það styrkir eigin starfsemi.

Safnið miðlar eyfirskum menningararfi með ýmsum hætti, bæði í útgáfu og sýningum á Akureyri: í Kirkjuhvoli, í Nonnahúsi, Davíðshúsi og Friðbjarnarhúsi. Þá hefur Minjasafnið á Akureyri, samkvæmt samningi við Þjóðminjasafn Íslands, umsjón með gamla torfbænum í Laufási og sýningahaldi þar. Ein viðamesta sýning safnsins nú er sýningin Tónlistarbærinn Akureyri sem opnaði 2020 en hún er afrakstur fjögurra ára frumrannsóknar á tónlistarmenningu bæjarins. Safnið notar ýmsar leiðir til að virkja íbúa starfssvæðisins, eins og að bjóða ungskáldum að taka þátt í viðburðaröðinni Allar gáttir opnar og Skáldastund í Davíðshúsi og leita eftir beinni þátttöku íbúa í ljósmyndasýningaröðinni Þekkir þú… og ljósmyndasýningunni Hér stóð búð. Þá voru íbúar beðnir um aðstoð við að greina myndefnið, með mjög góðum árangri.

Það er mat valnefndar að Minjasafnið á Akureyri haldi vel „lifandi“ tengslum milli svæðisbundins menningararfs og samtímans með vel skipulagðri starfsemi og hafi margsýnt hvers samfélagslega rekin minjasöfn eru megnug og mikilvæg þegar þau eru vel mönnuð og vel er haldið utan um þau. Áhersla á samfélagsleg gildi og samstarf við hina ýmsu ólíku hópa og aðila skipar Minjasafninu á Akureyri í hóp fremstu safna á Íslandi í dag.


Athugasemdir

Nýjast