Flugvélarnar fjórar áttu að fara klukkan 4:30, 5 og 5:30 í morgun en snemma var ljóst að sú áætlun myndi ekki standast og var opnuð aðstaða í flugskýli á Akureyrarflugvelli í nótt skömmu áður en fyrstu farþegarnir komu frá Reykjavík með rútum. Um tugur sjálfboðaliða frá Rauða krossinum á Akureyri bauð fólkinu upp á samlokur, kaffi og gosdrykki og félagar í Björgunarsveitinni Súlum aðstoðuðu starfsfólk Akureyrarflugvallar og Isavia við skipulag, segir á mbl.is.
Á vef Iceland Express kemur m.a. fram að flugvélar félagsins til og frá Kaupmannahöfn fari um Akureyrarflugvöll í dag og kvöld og það sama á við um flug til og frá London.