Mikilvægt að nýta jarðvarma til atvinnuuppbyggingar

Nú fyrir stundu undirritaði iðnaðarráðherra viljayfirlýsingu við Norðurþing, Skútustaðahrepp og Þingeyjarsveit um samstarf á sviði orkurannsókna, orkunýtingar og atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum. Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að nýta jarðvarma í Þingeyjarsýslum til stórfelldrar atvinnuuppbyggingar á svæðinu.   

Markmið þeirrar vinnu sem hefst í kjölfar undirritunarinnar er að skapa þær aðstæður að þann 1. október 2010 verði allri nauðsynlegri forvinnu lokið þannig að unnt verði að ganga til samninga við stóran orkukaupanda/orkukaupendur um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum. Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að velja einn eða fleiri trausta, ábyrga og fjárhagslega sterka aðila til samstarfs um atvinnuuppbyggingu sem byggir á hagnýtingu orkunnar frá háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum.  Lögð verði áhersla á að orkan sem er að finna á háhitasvæðum í Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi verði nýtt til að skapa nokkur hundruð bein varanleg störf í Þingeyjarsýslum.

Skipuð verður verkefnisstjórn sem mun bera ábyrgð á leit að mögulegum samstarfsaðilum um atvinnuuppbyggingu.  Í verkefnisstjórninni munu eiga sæti einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi þ.e. Norðurþingi, Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit, einn frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga, einn frá iðnaðarráðuneytinu / Fjárfestingarstofu, einn frá Þeistareykjum ehf. og einn frá Landsvirkjun. Verkefnisstjórnin skal ljúka fyrstu athugun á mögulegum samstarfsaðilum fyrir 1. apríl 2010 og nýta svo tímann til 1. október 2010 til nánari viðræðna og samningagerðar við þá sem til greina koma.

Aðilar munu beita sér fyrir að stofnað verði nýtt félag sem hafi það meginmarkmið að afla fjár til að ljúka áðurnefndum orkurannsóknum.  Hluthafar félagsins verði lífeyrissjóðir, aðrir fagfjárfestar,  Landsvirkjun, iðnfyrirtæki og mögulega sveitarfélögin á svæðinu.

Undanfarin þrjú ár hafa Norðurþing, Ríkisstjórn Íslands og Alcoa Inc. unnið að undirbúningi álvers á Bakka við Húsavík.  Formleg samstarfsyfirlýsing þessara aðila tók gildi 16. maí 2006 en  rann út 1. október sl. Alcoa er ekki aðili að viljayfirlýsingu þessari en er eftirleiðis jafnsett öðrum mögulegum samstarfsaðilum um afnot orkunnar.

Nýjast