Mikill meirihluti vill breyta nafninu í Akureyrarbær

Gera má ráð fyrir að bæjarbúar á Akureyri muni á næstu misserum ekki lengur búa í kaupstað heldur bæ…
Gera má ráð fyrir að bæjarbúar á Akureyri muni á næstu misserum ekki lengur búa í kaupstað heldur bæ.

Samkvæmt niðurstöðum úr könnun Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri vill mikill meirihluti bæjarbúa breyta nafninu úr Akureyrarkaupstaður í Akureyrarbær. Könnun var gerð á meðal íbúa Akureyrar dagana 7. til 25. mars sl. 

Spurt var: Núverandi nafn sveitarfélagsins er Akureyrarkaupstaður, hvort vilt þú halda því nafni eða breyta því í Akureyrarbær?

Niðurstöðurnar voru nokkuð afgerandi en 77% þeirra sem tóku afstöðu vildu breyta nafninu í Akureyrarbær en 23% vildu halda nafninu Akureyrarkaupstaður. Fleiri körlum en konum hugnaðist að halda í gamla nafnið eða 26,2% karla en aðeins 20% kvenna. Þá naut kaupstaðarnafnið meiri vinsælda hjá elsta aldurshópnum en öðrum. Í póstnúmerinu 600 vildu 21,1% halda í gamla nafnið en 78,9% vildu breyta því en í póstnúmeri 603 voru það 25,1% sem vildu halda nafni sveitarfélagsins óbreyttu en 74,9% breyta. Af 655 sem svöruðu spurningunni tóku 514 manns afstöðu milli kostanna tveggja en 141 hafði ekki myndað sér skoðun.

Akureyri og Akureyrarborg

Svarendur voru jafnframt spurðir hvort það væri eitthvert annað nafn sem þeim hugnaðist betur en þessi tvö og þar nefndu 54 Akureyri og 8 Akureyrarborg en fimm aðrir kostir fengu eitt atkvæði.

Forsaga þessa máls er sú að í janúarmánuði samþykkti bæjarráð Akureyrar að nafni sveitarfélagsins yrði breytt úr Akureyrarkaupstað í Akureyrarbæ og vísaði því til bæjarstjórnar til umræðu og afgreiðslu. Um er að ræða stjórnsýsluheiti á sameiginlegan opinberan rekstur á Akureyri, Hrísey og Grímsey. Eftir þær umræður í bæjarstjórn var ákveðið að fram færi skoðanakönnun meðal bæjarbúa um heitið og komi þar fram afdráttarlaus vilji bæjarbúa verði tekið mið af honum.

Í ljósi þessa má því gera ráð fyrir að bæjarbúar muni á næstu misserum ekki lengur búa í kaupstað heldur bæ.

 


Athugasemdir

Nýjast