Mikill áhugi fyrir tónleikum til heiðurs Ingimari Eydal
Gríðarlegur áhugi er fyrir tónleikum til heiðurs Ingimari Eydal í Hofi um helgina. Yfirskrift tónleikanna er "Fjölskylduferð í Skódanum" sem er tilvísun í brandara sem gjarnan var sagður af Ingimari en vísar líka til þess að þessir tónleikar munu líklega sýna fleiri hliðar á Ingimari en áður hafa komið fram. Uppselt er á tónleikana kl. 20.00 á morgun laugardag og kl. 16.00 á sunnudag. Enn eru til miðar á aukatónleika kl. 23.00 á laugardagskvöld.
Þessi ferð í Skódanum hans Ingimars verður full af elskulegheitum og óvæntum uppákomum. Ingimar var fæddur 20. október 1936 og hefði því orðið 75 ára á þessu ári hefði hann lifað. Inga Dagný Eydal, dóttir Ingimars, segir að undirbúningur tónleikanna hafi gengið vel. Við erum að upplifa mikinn áhuga og hlýhug frá fólki. Greinilegt að fólki þótti vænt um Ingimar Eydal og vill vera með í fjölskylduferðinni okkar. Upphaflega áætluðum við tvenna tónleika sem seldust fljótt og vel og til að gefa fleirum kost á að njóta settum við inn miðnæturtónleika á laugardagskvöld. Enn eru laus sæti þá og fer nú hver að verða síðastur að komast yfir miða þar sem einungis verður um þessa einu helgi að ræða. Við verðum með báða flygla Hofs á sviðinu í einu alla tónleikana og mun það vera einsdæmi, segir Inga.
Tónlistar- og hljómsveitarstjóri verður Karl Olgeirsson og með honum verður sannkallað stórskotalið eða þeir Gunnar Gunnarsson, Jón Rafnsson, Sigurður Flosason, Hannes Friðbjörnsson og Jón Elvar Hafsteinsson. Það eru svo þau Guðrún Gunnarsdóttir og Stefán Hilmarsson sem sjá um söng ásamt Ingu Eydal og Ingimari Birni Davíðssyni. Heiðursgestir verða svo söngvararnir ástsælu Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur Halldórsson.
Kynnir verður Margrét Blöndal og mun hún með aðstoð sviðsgaldra ýmis konar leiða gesti inn í heim tónlistarinnar og þess andrúmslofts sem fylgdi þessum einstaka og dáða listamanni á lífsleiðinni. Andrúmslofts sem einkenndist af elskulegheitum og glaðværð. Víða verður komið við, rifjuð upp tónlist frá ýmsum æviskeiðum Ingimars, ef til vill sagðar af honum ein eða tvær sögur og ferðast svolítið með tímavélinni um gömlu Akureyri, þegar við áttum "Lindu, Kea, Amaro og SÍS".