Mikil áhrif Covid-19 á starfsemi SAk

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri.

Starfsemistölur fyrstu fimm mánuði ársins hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) endurspegla vel þau áhrif sem COVID-19 faraldurinn hefur haft á hefðbundna starfsemi sjúkrahússins. Í pistli Bjarna Jónassonar forstjóra SAk segir að miðað við sama tímabil á síðasta ári fækkaði komum á dagdeildir um ríflega 13% og göngudeildarkomum um 25%.

Komur á bráðamóttöku voru um 19% færri, 12% fækkun var á sjúkraflugi og skurðaðgerðir voru um 540 færri eða um 30%. Fæðingar voru 146 og fækkaði um 12 frá fyrra ári. Þá fækkaði legudögum um 17% og rannsóknum fækkaði á bilinu 12-25%.

„Nú þegar landið verður opnað á ný getum við átt von á að fá til okkar einstaklinga með grun um smit eða smitaða. Á sama tíma og við vonum að ekki komi til þess þá erum við í stakk búin til að taka þeirri áskorun,“ skrifar Bjarni.

Þá segir hann að biðlistar og biðtímar eftir aðgerðum hafi eðlilega lengst í „kófinu“ og ljóst að nokkurn tíma tekur að vinda ofan af þeim.


Athugasemdir

Nýjast