09. september, 2009 - 12:53
Fréttir
Það verður mikið um að vera á Græna hattinum næstu daga, þar sem í boði verða spennandi tónleikar, með Melchior,
Dúndurfréttum og Bravó-bítlunum. Á fimmtudagskvöld verða útgáfutónleikar með Melchior kl. 21.00 en hljómsveitin er komin
með nýja plötu sem hefur fengið góða dóma.
Föstudagskvöldið 11. september kl. 22.00 spila Dúndurfréttir á Græna hattinum og að þessu sinni taka þeir fyrir Led Zeppelin. Á
laugardagskvöld kl. 21.00 stíga Bravó-bítlarnir á svið. Þeir slógu rækilega í gegn um verslunarmannahelgina og ætla að
endurtaka leikinn á Græna hattinum.