Lítið hefur verið fjallað um þetta slys, en höfundurinn, Margrét Þóra Þórsdóttir, hefur viðað að sér nýjum upplýsingum og hér er á ferð átakanleg saga um grimm örlög. Heimkoman, er nafnið á nýjustu bók Björns Þorlákssonar. Hann er landsþekktur fréttamaður, en missti í upphafi kreppu vinnuna og þurfti þá að endurskoða gildismat sitt og að sumu leyti að læra að lifa upp á nýtt. Afraksturinn er meinfyndin hrakfallasaga sem spyr stórra spurninga.