Margir vilja stýra Akureyrarstofu

Alls bárust 33 umsóknir um stöðu framkvæmdastjóra Akureyrarstofu en umsóknarfrestur rann út um helgina. Í þessum hópi eru m.a. tveir starfsmenn bæjarins, þau Sigríður Stefánsdóttir markaðs- og kynningarstjóri og Þórgnýr Dýrfjörð menningarfulltrúi. Framkvæmdastjóra er ætlað að sjá um stjórnun og daglegan rekstur Akureyrarstofu.

Hlutverk Akureyrarsstofu er að sinna menningarmálum, markaðs- og ferðamálum og atvinnumálum almennt fyrir hönd bæjarins. Eftirtaldir sóttu um stöðu framkvæmdastjóra.

Aðalsteinn Ólafsson, nemi

Agnes Arnardóttir, sjálfstæður atvinnurekandi

Andri Ottesen, framkvæmdastjóri

Arnljótur Bjarki Bergsson, nemi

Axel Grettisson, ráðgjafi

Ágúst G. Valsson, sölu- og markaðsstjóri

Bergþóra Aradóttir, landfræðingur

Björn Sigurður Lárusson, framkvæmdastjóri samfélagssamskipta

Daníel Arason, tónlistarkennari

Einar Þ.Pálsson, sjómaður og framkvæmdastjóri

Friðrik Rafnsson, kynningarstjóri

Glúmur Baldvinsson, upplýsingafulltrúi

Gunnar Valur Sveinsson, hótel- og veitingarekstrarfræðingur

Gunnar Þór Jóhannesson, doktorsnemi

Haraldur E. Ingimarsson, viðskiptafræðingur

Heiða Erlingsdóttir, kennari

Hjálmar Kjartansson, ráðgjafi

Illugi Torfason, nemi

Ingi Björn Sigurðsson, nýsköpunar- og frumkvöðlafræðingur

Ingólfur Ö Helgason, viðskiptafræðingur

Kristján K Kristjánsson, ráðgjafi

Magnús Kristjánsson, deildarstjóri

Rúnar Leifsson, fornleifafræðingur

Rúnar Sigtryggsson, nemi

Sigríður Guðrún Friðriksdóttir, nemi

Sigríður Margrét Sigurðardóttir, skólastjóri

Sigríður Stefánsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri

Sigurbjörg Árnadóttir, framkvæmdastjóri

Soffía Gísladóttir, framkvæmdastjóri

Sóley Magnúsdóttir, viðskiptafræðingur

Teitur Atlason, sjálfstæður atvinnurekandi

Tryggvi R. Jónsson, sérfræðingur

Þórgnýr Dýrfjörð, menningarfulltrúi

Nýjast