Magni nældi í markamaskínu

Gísli Gunnar Oddgeirsson og Jóhann Þórhallsson við undirskriftina.
Gísli Gunnar Oddgeirsson og Jóhann Þórhallsson við undirskriftina.

Hinn 36 ára gamli markahrókur Jóhann Þórhallsson er genginn til liðs við Magna á Grenivík, en hann skrifaði undir samning á dögunum sem gildir út næstu leiktíð. Magni spilar í 2. deild á Íslandi

Jóhann sem er markaskorari af guðs náð hefur leikið með Völsungi undanfarin 2. Hann skoraði 14 mörk í 19 leikjum á síðustu leiktíð en hefur alls skorað 36 mörk í 40 leikjum fyrir félagið.

Jóhann hefur komið víðar við á ferlinum hann hefur spilað fyrir Þór, KA, KR, Grindavík, Fylki og Völsung og hefur hingað til skorað 136 mörk í 302 leikjum á ferlinum.

Jóhann, sem er 36 ára gamall, gerir samning við Magna út leiktíðina. Liðið var í baráttu um sæti í Inkasso deildinni síðasta sumar en endaði í 5.sæti með 31 stig.


Athugasemdir

Nýjast