Góð frammistaða Óðins á Íslandsmeistaramóti í 50m laug

Jón Ingi Einarsson vann fimm verðlaun á mótinu    Myndir Hákon Ágústsson
Jón Ingi Einarsson vann fimm verðlaun á mótinu Myndir Hákon Ágústsson

Íslandsmeistaramót í 50m laug 2026 fór fram í Ásvallarlaug í Hafnarfirði helgina 27.- 29. mars og var Sundfélagið Óðinn með 16 keppendur skráða til leiks. Vegna veðurs þurfti hópurinn að ferðast degi fyrr en auka dagur í Hafnarfirði var vel nýttur til æfinga í keppnislauginni.

Eftirtaldir sundmenn Óðins unnu til verðlauna á mótinu:

Benedikt Már Þorvaldsson vann tvö bronsverðlaun í bringusundi í flokki 18 ára og yngri, í 100m og 200m bringusundi.

Jón Ingi Einarsson vann til fimm verðlauna í flokki 18 ára og yngri: 2. sæti í 50m baksundi og 50m flugsundi og 3. sæti í 50m skriðsundi, 200m fjórsundi og 400m fjórsundi. Í 50m skriðsundi setti hann Akureyrarmet í flokki 15–17 ára.

Með þessum árangri hefur Jón Ingi verið valinn í framtíðarhóp landsliðsins og mun keppa í Taastrup í Danmörku í maí.

Örn Kató Arnarsson vann tvö silfurverðlauna í opnum flokki í 800m og 1500m skriðsundi. Í 800m skriðsundi bætti hann eigið Akureyrarmet og setti jafnframt nýtt Akureyrarmet í 1500m skriðsundi.

Björn Elvar Austfjörð komst inn í framtíðarhóp SSÍ með góðum árangri á mótinu.

Sundmenn Óðins í úrslitum:

Alexander Reid McCormick – 200m, 800m og 1500m skriðsund
Benedikt Már Þorvaldsson – 100m og 200m bringusund
Friðrika Sif Ágústsdóttir – 200m flugsund, 800m og 1500m skriðsund
Ísabella Jóhannsdóttir – 50m og 200m bringusund
Jón Ingi Einarsson – 50m skriðsund, 200m og 400m fjórsund
Magni Rafn Ragnarsson – 50m og 200m bringusund
Örn Kató Arnarsson – 100m bringusund, 400m, 800m og 1500m skriðsund

Frábært mót er að baki þar sem margir persónulegir sigrar unnust. 

Hægt að skoða fleiri myndir af mótinu með því að smella hér.

Nýjast