Mæðrastyrksnefnd á Akureyri styrkt um hálfa milljón króna

Styrkurinn afhentur, f.v. Einar Ingimundarson, Jóna Berta Jónsdóttir, Siggerður Tryggvadóttir og Arn…
Styrkurinn afhentur, f.v. Einar Ingimundarson, Jóna Berta Jónsdóttir, Siggerður Tryggvadóttir og Arne Vagn Olsen.

Íslensk verðbréf afhentu í vikunni Mæðrastyrksnefnd á Akureyri hálfa milljón króna að gjöf og mun nefndin nýta fjármunina til þess að styðja skjólstæðinga sína nú fyrir jólin. Þetta er fimmta árið í röð sem Íslensk verðbréf færa nefndinni styrk, þar af hefur styrkurinn numið hálfri milljón króna undanfarin fjögur ár. Styrkurinn kemur í stað jólakorta sem áður voru send viðskiptavinum.

 

Einar Ingimundarson, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir að ákveðið hafi verið að leggja Mæðrastyrksnefnd lið í hennar mikilvæga verkefni að styðja fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu sem standi höllum fæti. Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar hafa fært nefndinni gjafir og hvetja Íslensk verðbréf alla sem eru aflögufærir til aðgeraslíkt hið sama. Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segist vera afar þakklát fyrir þessa gjöf Íslenskra verðbréfa sem mun nýtast sérstaklega vel nú um jólin. Að sögn Jónu Bertu er eftirspurnin nú svipuð og undanfarin ár, en mikil aukning varð á fjölda beiðna í kjölfar hrunsins. Nefndinni hefur borist svipaður fjöldi beiðna og í fyrra og er ráðgert að styðja upp undir 500 fjölskyldur nú um jólin. Skjólstæðingar nefndarinnar eru á öllu Eyjafjarðarsvæðinu auk Siglufjarðar.

Um Mæðrastyrksnefndina á Akureyri

Nefndin var stofnuð árið 1939 og hefur í gegnum tíðina veitt einstæðum mæðrum, einstæðum feðrum og efnalitlum fjölskyldum aðstoð með margvíslegum hætti. Um þessi jól fá um 500 fjölskyldur aðstoð og hafa Íslensk verðbréf ákveðið að leggja góðu málefni lið og styrkja Mæðrastyrksnefndina um fyrrgreinda upphæð.

Um Íslensk verðbréf

Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem hófu starfsemi árið 1987. Starfsmenn eru 20 talsins, höfuðstöðvar þess eru á Akureyri en jafnframt starfrækir félagið skrifstofu að Sigtúni 42 í Reykjavík. Eignir í stýringu nema um 130 milljörðum króna.

 

Nýjast