Lýstar kröfur í þrotabú Orku- varðar ríflega 160 milljónir króna

Lýstar kröfur í þrotabú Orkuvarðar ehf nema ríflega 160 milljónum króna, en frestur til að lýsa kröfum í búið er nú liðinn.  Orkuvörður og RES-orkuskólinn voru tekin til gjaldþrotaskipta upp úr miðjum janúar síðastliðnum, en félagið var stofnað í þeim tilgangi að reka alþjóðlegan orkuskóla á Akureyri.  

Ingvar Þóroddsson skiptastjóri þrotabúsins segir að ekki sé mikið um eignir í búinu og því alls ekki ljóst að loknum fyrsta skiptafundi sem var nýlega hvort eitthvað fáist greitt upp í kröfur.  Forgangskröfur í búið nema um 40 milljónum króna, en einungis var fyrsta kastið fallist á um 5 milljónir króna. „Það eru ýmsir þættir sem á eftir að skoða, skiptum verður ekki lokið alveg á næstunni, það þarf að leysa úr ágreiningi varðandi nokkur mál áður en að því kemur," segir Ingvar.  

RES-orkuskólinn starfaði frá árinu 2007 og menntaði meistaranema á sviði orkuvísinda og vistvænnar nýtingar endurnýjanlegra orkugjafa. Akureyrarbær var einn hlutahafa í félaginu og hafði lýst yfir vilja til að auka hlutafé sitt að því skilyrði uppfylltu að aðrir hluthafar gerðu slíkt hið sama.  Það gekk ekki eftir.

Nýjast