16. apríl, 2010 - 18:16
Fréttir
Lögreglan á Akureyri og Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar lýsa eftir Emilíönu Andrésardóttur, sem strauk frá meðferðarheimilinu Stuðlum
þann 15. apríl sl. Síðast sást til hennar í Hafnarfirði á leið til Reykjavíkur. Emilíana er fædd árið 1996.
Hún er dökkhærð, um 160 sm á hæð og grannvaxin. Emilíana var klædd í svartar Everlast buxur, svarta Kawasaki skó, hvíta
og fjólubláa Adidas peysu og í hvítum bol innan undir.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Emilíönu, eða vita hvar hún er stödd, eru beðnir um að hafa samband við lögregluna
á Akureyri í síma 464 7705.