Bæjarráð Norðurþings skorar á ríkisstjórn Íslands að samþykkja ríkisábyrgð á fjármögnun Vaðlaheiðarganga svo hægt sé að hefja framkvæmdir sem allra fyrst. Í ljósi umræðna um Vaðlaheiðagöng vill bæjarráð Norðurþings ítreka að Víkurskarð er á vetrum farartálmi sem takmarkar aðgengi að nauðsynlegri neyðarþjónustu. Vaðlaheiðargöng eru einnig forsenda þess að Eyjafjörður og Þingeyjarsýslur geti orðið eitt atvinnu- og þjónustusvæði. Nauðsynlegt er að taka tillit til allra þessara þátta þegar hagkvæmni Vaðlaheiðarganga er metin, segir í bókun bæjarráðs.
Í greinargerð IFS greiningar um framkvæmd Vaðlaheiðarganga eru leiddar líkur að því að auka þurfi eigið fé Vaðlaheiðarganga ehf. svo tryggja megi hagstæða fjármögnun til framtíðar. Bæjarráð Norðurþings lýsir vilja sínum til að auka hlutafé sitt í Vaðlaheiðargöngum hf., frá því sem áður hefur verið lofað svo hægt sé að hefja framkvæmdir við göngin sem allra fyrst, segir ennfremur í bókuninni.
Áður hafa sveitarstjórnir Eyjarfjarðarsveitar og Þingeyjarsveitar lýst yfir vilja sínum til að auka hlutafé sitt í Vaðlaheiðargöngum hf.