Lokaútkall Grenivík fríar lóðir í boði!

Frá Grenivík   Mynd www.grenivik.is
Frá Grenivík Mynd www.grenivik.is

Síðustu árin hafa gatnagerðargjöld verið felld niður af lóðum við tilbúnar götur á Grenivík.  Mikil eftirspurn hefur verið og lausum lóðum er mjög farið að fækka.  Enn eru þó nokkrar eftir, m.a. við Ægissíðu, Stórasvæði og Lækjarvelli.

Sveitarstjórn bókaði svo á fundi sínum í gær:

"Sveitarstjórn samþykkir að framlengja ákvæði um niðurfellingu á gatnagerðargjöldum við tilbúnar götur á Grenivík þannig; Að lóðir sem sótt er um fyrir árslok 2022 við tilbúnar götur á Grenivík beri ekki gatnagerðargjöld, enda sé framkvæmdatími í samræmi við skilmála í lóðarleigusamningi."

Það er því enn hægt að sækja um lóðir án gatnagerðargjalda, eða til áramóta.  Skilmálar í lóðaleigusamningum gera ráð fyrir að framkvæmdir hefjist innan 12 mánaða og þeim ljúki innan 3ja ára frá undirritun lóðarleigusamnings.

Sótt er um lóð með einföldum tölvupósti á netfangið sveitarstjori@grenivik.is .

Segir í frétt á heimasíðu sveitarfélagsins  www.grenivik.is


Athugasemdir

Nýjast