Lögreglan varar við vondri veðurspá

Veður fer versnandi á Norðurlandi eftir því sem líður á daginn.
Veður fer versnandi á Norðurlandi eftir því sem líður á daginn.
Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við slæmu veðurútliti framundan, með mjög hvassri norðvestanátt og snjókomu á svæðinu. Veðurofsinn hefst í kvöld, föstudag og mun standa fram á miðjan dag á morgun, laugardag.
 
"Vert er að nota daginn í dag og huga að lausum munum og jafnvel jólaskrauti. Reikna má með að vegir teppist og ekki mun viðra til ferðalaga. Eigendur báta og annara eigna við sjó og hafnir eru beðnir um líta eftir eigum sínum, þar sem norðvestanátt er víða til vandræða við þessar aðstæður," segir á Facebooksíðu lögreglunnar.

Athugasemdir

Nýjast