03. maí, 2009 - 17:57
Fréttir
Lögreglan á Akureyri lýsir eftir Ingibjörgu Sigurrósu Sigurðardóttur. Ingibjörg er 16 ára gömul, um 168 cm á
hæð og 56 kg. Ingibjörg er með dökkleitt hár en ljóst að hluta og hún gengur með gleraugu. Ingibjörg fór frá
heimili sínu að morgni 1. maí sl. og hefur ekkert spurst til hennar síðan. Ingibjörg er líklega í gallabuxum og í grárri
hettupeysu. Þeir sem geta veitt upplýsingar um hvar Ingibjörg Sigurrós sé niðurkomin eru beðnir að hafa samband við lögregluna á
Akureyri í síma 464 7705.