14. september, 2010 - 15:15
Fréttir
Betur fór en á horfðist þegar ljósastaur við gangbraut yfir Þórunnarstræti á Akureyri, rétt ofan við
lögreglustöðina, brotnaði og féll á gangstéttina nú fyrir stundu. Mildi þykir að staurinn hafnaði ekki á bíl eða gangandi
vegfaranda. Reyndar er leiðindaveður á Akureyri þessa stundina, hvassviðri og rigning og því fáir á ferðinni nema akandi.
Stórt gangbrautarmerki er á staurnum, einnig aðvörunarljós og flóðljós sem brotnaði. Greina mátti gamla sprungu í staurnum,
þar sem hann brotnaði og hann því þolað minni vind en ella.