Þeir stjórnmálaflokkar sem bjóða fram í NA-kjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar hafa nú margir hverjir tilkynnt um efstu sæti listanna. Einar Brynjólfsson, þingmaður Pírata, verður aftur oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir þingkosningarnar, Guðrún Ágúst Þórdísardóttir verður sömuleiðis aftur í öðru sæti og Urður Snædal í þriðja sæti á lista Pírata.
Hjá Samfylkingunni mun Logi Már Einarsson, formaður flokksins, leiða framboðslista flokksins í kjördæminu. Í öðru sæti á listanum er Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og í þriðja sæti María Hjálmarsdóttir.
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður og menntamálaráðherra, mun leiða framboðslista Sjálfstæðisflokksins. Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður mun skipa annað sæti listans og Valgerður Gunnarsdóttir alþingismaður verður í þriðja sæti.
Alþýðufylkingin býður fram í kjördæminu og mun Þorsteinn Bergsson leiða listann líkt og í síðustu kosningum. Í öðru sæti listans er Bjarmi Dýrfjörð og Ragnhildur Hallgrímsdóttir í þriðja sæti.
Hjá Flokki fólksins verður Halldór Gunnarsson oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi en ekki fengust upplýsingar um önnur sæti.
Hjá Bjartri framtíð leiðir Arngrímur Viðar Ásgeirsson listann, Halla Björk Reynisdóttir er í öðru sæti og Hörður Finnbogason í þriðja sæti.
Þeir flokkar sem eiga eftir gefa út röð á lista eru Framsóknarflokkurinn, Vinstri grænir, Viðreisn, Íslenska þjóðfylkingin og Miðflokkurinn, flokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Dögun mun ekki bjóða fram á landsvísu.