Leiksvæði í Skátagilinu í undirbúning

Jarðvegsvinna í gangi í Skátagilinu.
Jarðvegsvinna í gangi í Skátagilinu.

Framkvæmdir standa nú yfir í Skátagilinu í miðbæ Akureyrar þar sem verður útbúið leiksvæði með leiktækjum sem eiga að höfða til yngstu kynslóðarinnar. Jarðvegsvinna hófst fyrir nokkrum dögum og gert er ráð fyrir að verkinu verði lokið fyrir 17 júní, segir á vef Akureyrarbæjar.

Síðar í sumar verða enn fleiri leiktæki sett upp. Þar á meðal er rennibraut í Skátagilinu, hringekja og fleiri leiktæki á Ráðhústorgi. Einnig verða sett upp líkamsræktartæki á Eiðsvelli síðar í sumar.

„Markmiðið er fyrst og fremst að lífga upp á miðbæinn og gera hann að enn skemmtilegri stað fyrir fólk á öllum aldri og fjölskyldur til að koma saman og njóta lífsins,“ segir á vef bæjarins.


Athugasemdir

Nýjast