Leikskólinn Klappir tekinn í notkun í haust

Mynd:akureyri.is
Mynd:akureyri.is

Í desember 2018 var tekin ákvörðun um að fara í byggingu á leikskóla (Klappir) við Glerárskóla. Miðað var við 145 barna leikskóla og að tekin yrðu inn börn frá eins árs aldri. Heildarstærð skólans er um 1450m² og skiptist húsið í tvær hæðir og eru þar 7 eins deildir með sameiginlegu miðjurými í gegnum allan skólann.

Leiksksóli

Húsið er steinsteypt með múrklæðningu að utan og allir innveggir eru steyptir, sandsparslaðir og málaðir. Á efri hæð hússins eru yngri deildirnar ásamt ungbarnadeild, stjórnunarálmu og kaffiaðstöðu. Á neðri hæð hússins eru elstu tvær deildirnar ásamt eldhúsi og tengigangi inn í Glerárskóla og íþróttahús. Framkvæmdir hófust í apríl 2020 og er áætlað að þeim ljúki í lok ágúst 2021. Stefnt er að því að taka börn inn í leikskólann í byrjun september 2021. Unnið er að frágangi innanhúss og er lóðarfrágangur eins í fullum gangi.

Framkvæmdir eru einnig að hefjast við uppsetningu á körfuboltavelli (Garðinum hans Gústa) norðan við B-álmu Glerárskóla. Sett verður upp girðing umhverfis völlinn og meðfram norðurhlið vallarins verður svæði fyrir áhorfendabekki og gróðurbelti. Umsjón með uppsetningu og framkvæmd verður hjá vinum Ágústs H. Guðmundssonar í nánu samstarfi við Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar. Ágúst lést langt fyrir aldur fram en hann var mikill unnandi körfuknattleiks og markaði djúp spor í sögu íþróttarinnar hér á Akureyri. Ágúst spilaði körfuknattleik með Þór á sínum yngri árum ásamt því að hafa verið þjálfari hjá félaginu til margra ára og er hann sigursælasti þjálfari í sögu félagsins.


Athugasemdir

Nýjast