Leikskólagjöld fyrir börn með lögheimili utan Reykjavíkur

Á fundi skólanefndar Akureyrarbæjar í vikunni var fjallað um breytingar á leikskólagjöldum í höfðuborginni, fyrir börn með lögheimili utan Reykjavíkur. Kynnt var samkomulag sem náðist á fundi sem Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Gunnar Gíslason fræðslustjóri áttu með borgarstjóra, formanni borgarráðs og fjármálastjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur.  

Þar kemur fram að farið verður eftir viðmiðunargjaldskrá Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna barna sem dvelja í leikskólum Reykjavíkur en eru með lögheimili á Akureyri. Þegar endurskoðun á viðmiðunargjaldskrá Sambandsins er lokið gildir sú gjaldskrá afturvirkt og verður gerður einn reikningur fyrir mismuninum á núverandi gjaldskrá og endurskoðaðri gjaldskrá fyrir það tímabil sem börnin dvelja í leikskólum borgarinnar en eiga lögheimili á Akureyri.

Nýjast