Bernharð Arnarson formaður Leikfélags Hördæla segir ekkert lát á vinsældum verksins, en vorannir bænda sem framundan eru valdi því að sýningum er hætt í bili. Fullt hefur verið á allar sýningar, en frumsýning var í byrjun mars og nú þegar lotunni lýkur um helgina eru þær orðnar 30 talsins. Áhorfendur eru um 2.800 í allt. „Við hættum núna fyrir fullu húsi og með biðlista, þannig að sú ákvörðun var tekin að hefja sýningar á ný aftur í haust. Bændur þurfa nú að snúa sér að sauðburði og öðrum vorverkum í sveitinni," segir Bernharð.
Hann segir menn afskaplega ánægða með hversu vel tókst til og að verkið hafi algjörlega slegið í gegn. Mikið var um aðkomufólk á sýningum félagsins í vetur og komu sumir um langan veg til að sjá sýninguna. „Við teljum okkur hafa sannað að nekt selur, sama í hvað mynd hún er, misvel vaxnir bændur sem fækka fötum hafa greinilega mikið adráttarafl," segir Bernharð.