29. september, 2010 - 19:42
Fréttir
Lárus Orri Sigurðsson skrifar í kvöld undir þriggja ára samning við KS/Leiftur um að taka við þjálfun félagsins í
meistaraflokki karla í knattspyrnu. KS/Leiftur leikur í 2. deild og hafnaði í 9. sæti deildarinnar í sumar. Lárus þjálfaði
síðast 1. deildarlið Þórs en hætti með liðið í lok maí.