Lárus Orri ósáttur við aðalstjórn Þórs- Íhugar að segja af sér

"Það virðist skipta meira máli fyrir formann Þórs að eignast vini hjá KA en að leyfa okkur að æfa á Þórsvelli." Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Lárusar Orra Sigurðssonar ,þjálfara meistaraflokks Þórs, í viðtali við fotbolta.net að loknum tapleikum gegn Leikni í gærkvöld, í 1. karla í knattspyrnu. KA fékk afnot af Þórsvellinum í leiknum gegn Gróttu í gærkvöld og það virðist ekki hafa fallið vel í kramið hjá Lárusi Orra.

Lárus segir í viðtalinu að það sé erfitt að vera þjálfari Þórs þegar stjórnin vinni á móti sér. Ágreiningur sé til staðar milli hans og stjórnarinnar og aðspurður segist hann klárlega íhuga að segja af sér. "Það verður farið yfir málin núna vonandi um helgina og tekinn einn dagur fyrir einu. Ég er búinn að eyða nokkrum árum í byggja þetta lið upp, en kannski er kominn tími til að stíga frá og leyfa öðrum að byrja frá grunni," segir Lárus.

Þór hefur ekki farið vel af stað í 1. deildinni og er með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Nýjast