Landsmót unglingadeilda Landsbjargar á Dalvík

Landsmót unglingadeilda Slysavarnafélagsins Landsbjargar fer nú fram á Dalvík dagana 6. - 10. Júlí. Mótið byggist uppá póstum og er hver póstur sérstaklega uppbyggður með verkefni. Í póstunum er farið í allt sem tengist grunnþekkingu björgunarmannsins t.d. sig, klifur, báta, rústabjörgun, leitartækni ofl.  

Unglingunum er skipt upp í hópa þannig að það séu sem fæstir frá hverri deild fyrir sig saman í hóp, þannig gefst krökkunum tækifæri á að kynnast og oft hefur góð vinátta á milli unglingadeilda myndast í kjölfarið. Á landsmótinu er landsþing unglinga, það er frábær vettvangur fyrir krakkana til að hafa áhrif á starfsemi unglingamála hjá félaginu.
Í ár munu vera um 400 manns skráðir á mótið og þar af 23 erlendir umsjónarmenn frá verkefninu Volunteer together en þeir voru á Gufuskálum í vikunni þar sem haldin var vinnustofa um rekstur ungliðastarfs í Evrópu.

Nýjast