Unglingunum er skipt upp í hópa þannig að það séu sem fæstir frá hverri deild fyrir sig saman í hóp, þannig gefst
krökkunum tækifæri á að kynnast og oft hefur góð vinátta á milli unglingadeilda myndast í kjölfarið. Á landsmótinu
er landsþing unglinga, það er frábær vettvangur fyrir krakkana til að hafa áhrif á starfsemi unglingamála hjá félaginu.
Í ár munu vera um 400 manns skráðir á mótið og þar af 23 erlendir umsjónarmenn frá verkefninu Volunteer together en þeir voru
á Gufuskálum í vikunni þar sem haldin var vinnustofa um rekstur ungliðastarfs í Evrópu.