Læknaráð mótmælir niðurskurði á heilbrigðisþjónustu

Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Læknaráð Sjúkrahússins á Akureyri hefur sent frá sér ályktun vegna boðaðs niðurskurðar  til heilbrigðismála á fjárlögum fyrir árið 2012, þar sem þessum niðurskurði á heilbrigðisþjónustu er mótmælt. Ekki sé lengur hægt að tala um hagræðingu í þessu samhengi. Þjónustuskerðing sé óhjákvæmileg og heilbrigðisyfirvöld þurfi því að marka skýra stefnu  um hvaða þjónustu á að halda áfram að bjóða upp á.

“Nú liggur fyrir áætlun um 170 milljón króna sparnað á Sjúkrahúsinu á Akureyri árið 2012. Sú áætlun felur meðal annars í sér skerðingu á skurðstofustarfsemi, og fækkun leguplássa á tilheyrandi deildum. Þetta þýðir lengri biðlista eftir aðgerðum með tilheyrandi þjónustuskerðingu.Mikil skerðing verður á starfsemi barnadeildar, þeirrar einu utan LSH. Þessi skerðing hefur einnig áhrif á starfsemi fæðingadeildar og þjónustu við þungaðar og fæðandi konur sem þarf þá að senda á LSH.Dregið verður úr starfsemi endurhæfingar-og öldrunarlækningadeildar og vafasamt hvort það felur í sér sparnað þegar til lengri tíma er litið. Niðurskurðurinn felur í sér verulega þjónustuskerðingu við sjúklinga á Norður-og Austurlandi. Það er mikilvægt að velferðarráðherra skilgreini hvaða heilbrigðisþjónustu skuli veita áfram og hvert hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri verður í framtíðinni. Ef þessi niðurskurður verður að veruleika er hætta á að mikil sérhæfing og sérþekking glatist og setji nýja framtíðarsýn Sjúkrahússins á Akureyri í uppnám. Við lýsum yfir þungum áhyggjum af þessu og skorum á velferðarráðherra og Alþingi að endurskoða kröfu sína um niðurskurð í heilbrigðismálum,” segir ennfremur í ályktuninni, sem samþykkt var á almennum fundi læknaráðs Sjúkrahússins á Akureyri í vikunni.

 

Nýjast