Alls 76 konur eru innritaðar á haustönn í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri en í námið eru nú skráðir 150 nemendur ef taldir eru með nýnemar og nemendur sem eru að hefja síðara námsár. Hlutfall kynjanna er því nánast jafnt en innritaðir karlar eru 74 talsins. Um 80% nemendanna eru skráðir í fjarnám. Vísir greindi frá þessu.
Þá greinir Vísir frá því að færri löggæslunemar komist í starfsnám, sem er hluti námsins. Að jafnaði eru einungis 40 nemendur teknir inn í það á hverju ári. Fjöldi starfsnema hverju sinni endurspeglar áætlaðan fjölda útskrifaðra lögreglumanna á ári.
Auk tveggja ára diplómanáms, sem veitir starfsréttindi, er boðið upp á þriggja ára nám til BA-prófs í lögreglufræðum.