Kynferðisafbrot gagnvart systursonum

Refsingu yfir karlmanni sem beitti þrjá systursyni sína kynferðislegu ofbeldi á síðasta ári, hefur verið frestað haldi maðurinn almennt skilorð í fimm ár. Maðurinn lét drengina þrjá sem voru á aldrinum frá tæplega tveggja ára til þriggja ára m.a. setja getnaðarlim sinn í munn sér og voru brotin í einhverjum tilfella ítrekuð. Héraðsdómur Norðurlands eystra komst að þeirri niðurstöðu að manninum yrði ekki gerð refsing að þessu sinni, haldi hann skilorð í fimm ár. Maðurinn var hins vegar dæmdur til að greiða tveimur drengjanna 600 þúsund krónur hvorum, 250 þúsund króna sakarkostnað og til að greiða réttargæslumanni tveggja þeirra 350 þúsund krónur.

Nýjast