Kvennahlaup ÍSÍ - Hlaupið frá Hofi á Akureyri

Kvennahlaup Sjóvá og ÍSÍ fer fram á laugardag. /Mynd úr safni
Kvennahlaup Sjóvá og ÍSÍ fer fram á laugardag. /Mynd úr safni

Þá er komið að hinu árlega Kvennahlaupi ÍSÍ sem fram fer um allt land á sunnudag. Á Akureyri hefst hlaupið klukkan 14:00 og er hlaupið frá Menningarhúsinu Hofi. Þetta er árlegur viðburður þar sem konur á öllum aldri koma saman og njóta þess að hreyfa sig og skemmta sér saman en fyrsta Kvenna­hlaupið var haldið í júní árið 1990 í tengslum við Íþrótta­hátíð ÍSÍ.

Markmið Sjóvá Kvenna­hlaups­ins frá upp­hafi er að vekja áhuga kvenna á reglu­legri hreyf­ingu. Hver kona tekur þátt á sínum for­sendum. Því er engin tíma­taka í Kvenna­hlaup­inu og lögð er áhersla á að hver kona komi í mark á sínum hraða og með bros á vör. Á Akureyri er boðið upp á vegalengdirnar  2 km. og 5 km. Þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu.

Á Dalvík er boðið upp á 2,2 km. hlaup frá sundlaug Dalvíkur klukkan 11:00 og frítt er í sund fyrir þátttakendur á eftir.

Í Eyjafjarðarsveit verður hlaupið frá Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar klukkan 11:00. Þar verður boðið upp á 2,5 km. og 5 km. vegalengdir. Þar er einnig frítt í sund eftir hlaupið.


Athugasemdir

Nýjast