Þann 1. febrúar var dagur kvenfélaganna á Íslandi. Í áraraðir hafa kvenfélögin í hinu dreifbýla og víðfeðma samfélagi við Öxarfjörð látið gott af sér leiða. Að sögn Guðrúnar S. Kristjánsdóttur, skólastjóra Öxarfjarðaskóla, hafa kvenfélögin í skólasamfélagi Öxarfjarðarskóla látið sér annt um skólastarfið í gegnum árin og sýnt skólanum stuðning á margan hátt m.a. gert honum kleyft að eignast búnað sem annars væri erfitt að setja fjármagn í.
“Nú síðast þennan vetur hafa kvenfélögin hér gert okkur mögulegt að kaupa skjávarpa í kennslustofu unglingastigs, miðstigs og yngsta stigs og við kunnum Kvenfélaginu Stjörnunni, Kvenfélagi Öxarfjarðar og Kvenfélagi Kelduhverfis, bestu þakkir fyrir þennan höfðinglega stuðning. Þetta gerir okkur auðveldara að miðla kennsluefni á rafrænu formi til nemenda, t.d. fræðslumyndum og fleira.
Félagasamtök sem kvenfélögin okkar og björgunarsveitirnar, eru samfélaginu okkar ómetanleg. “Segir Guðrún Kristjánsdóttir. JS