Með þessu vilja konur í kvenfélögunum senda hlýja kveðju til nýrra þjóðfélagsþegna og vekja athygli á því mikla og hljóðláta starfi sem unnið er af kvenfélögum um land allt. Hverri húfu mun fylgja heillaóskakort með nafni þeirrar konu sem hana prjónaði og nafni kvenfélagsins sem hún tilheyrir. Einnig hafa margar konur sem ekki tilheyra kvenfélögum boðist til að prjóna húfur og taka þannig þátt í þessu jákvæða og skemmtilega verkefni. Kvenfélagskonur í Eyjafirði fóru á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri rétt fyrir áramótin og afhentu ljósmæðrum þar fyrstu húfurnar.