Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í gær aukinn fjárhagslegan stuðning við aðildarfélög sambandsins. KSÍ tekur yfir ferða- og uppihaldskostnað dómara fyrir árið 2010 í öllum deildum beggja kynja og í leikjum VISA bikarsins.
Þar með er ljóst að niður falla öll gjöld í jöfnunarsjóði sem gerð er krafa um í þátttökutilkynningum meistaraflokks á þessu ári sem og allar slíkar greiðslur til dómara af hálfu aðildarfélaga á vettvangi í þeim keppnum þar sem það fyrirkomulag hefur verið viðhaft. Við þetta lækkar kostnaður félaganna um 30 milljónir króna. Framlag til þeirra 24 félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ í Pepsi-deild karla og 1. deild karla verður 500 þúsund krónur á hvert félag, en í 1. deildinni leika KA og Þór.
Framlagið verður greitt í tveimur hlutum, 250 þúsund 1. febrúar svo fremi sem félag hafi staðið í skilum á leyfisgögnum 15. janúar, og 250 þúsund 1. mars svo fremi sem félag hafi gert skil á fjárhagslegum gögnum 20. febrúar. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.