Kropparnir styrkja kvennaknatt- spyrnuna á Akureyri

Alda Karen Ólafsdóttir Hjaltalín, formaður Kroppanna, styrktarfélags meistaraflokks og 2. flokks Þórs/KA í knattspyrnu, afhenti Hönnu Dóru Markúsdóttur fjölmiðlafulltrúa kvennaráðs, ríflega 60.000 króna fjárstyrk í leikhléi á leik Þórs/KA og Aftureldingar/Fjölnis á Þórsvellinum í gærkvöld. Þessarar peningaupphæðar söfnuðu Kropparnir með sölu á bolum í sumar en það var verslunin Doremí á Glerártorgi sem gaf bolina.

Nýjast