Kristján Möller efstur í prófkjöri Samfylkingarinnar

Úrslit eru ljós í netprófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi sem hófst á fimmtudag en lauk kl. 17.00 í dag. Kristján Möller samgönguráðherra er sigurvegari prófkjörsins og mun því skipa fyrsta sæti lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir næstu kosningar. Sigmundur Ernir Rúnarsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður, hafnaði í öðru sæti listans.  

Alls kusu 2.574 manns í prófkjörinu. Kosningin er bindandi fyrir átta efstu sætin.  Þau raðast þannig:

1. Kristján L. Möller 1173 atkvæði
2. Sigmundur Ernir Rúnarsson 917 atkvæði
3. Jónína Rós Guðmundsdóttir 844 atkvæði
4. Logi Már Einarsson 737 atkvæði
5. Helena Þ. Karlsdóttir 942 atkvæði
6. Örlygur Hnefill Jónsson 1138 atkvæði
7. Herdís Björk Brynjarsdóttir 1174 atkvæði
8. Stefanía G. Kristinsdóttir 1245 atkvæði

Nýjast