Konur launalausar í 36 daga á ári
Kvennafrídagurinn er mánudagurinn 24. október og þá standa Akureyrarbær og Jafnréttisstofa fyrir hádegisfundi á Hótel Kea.
Til umfjöllunar verður launajafnrétti en í árlegri launakönnun meðal félaga VR kemur meðal annars fram að kynbundinn launamunur minnkar ekki milli ára. Ef litið er til grunnlauna eru konur með 12,2% lægri laun en karlar og þegar búið er að taka tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á launin situr eftir 9,9% kynbundinn munur á grunnlaunum.
Þetta þýðir að í raun eru konur "launalausar" í 36 daga á ári.
Dagskrá fundarins:
- 11.45: Húsið opnað.
- 12.00: Fundarstjóri setur fundinn. Katrín Björg Ríkarðsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra.
- 12.05: "Til færri fiska metnar." Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.
- 12.15: "Starfsmatskerfi til að meta ólík störf til sömu launa." Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags.
- 12.30: "Völd, virðing og launaseðillinn." Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.
- 12.45: Umræður.
- 13.15: Fundi slitið.