Kvennafrídagurinn er mánudagurinn 24. október og þá standa Akureyrarbær og Jafnréttisstofa fyrir hádegisfundi á Hótel Kea.
Til umfjöllunar verður launajafnrétti en í árlegri launakönnun meðal félaga VR kemur meðal annars fram að kynbundinn launamunur minnkar ekki milli ára. Ef litið er til grunnlauna eru konur með 12,2% lægri laun en karlar og þegar búið er að taka tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á launin situr eftir 9,9% kynbundinn munur á grunnlaunum.
Þetta þýðir að í raun eru konur "launalausar" í 36 daga á ári.
Dagskrá fundarins: