Konur án klæða

Myndlistasýningin Konur án klæða opnar laugardaginn 23. okt. kl. 13 og er opin til kl. 17 í Deiglunni Kaupvangsstræti 23 á Akureyri. Sami opnunartími er sunnudag 24. október og stendur sýningin yfir í þessa tvo daga.

Að sýningunni stendur myndlistahópurinn KÀK sem deilir vinnustofu í Kaupvangsstræti 2 ásamt fleiri listamönnum og kynntist í gegnum listina á ýmsum tímum.

Konur án klæða birtast okkur í ýmsum myndum í tilverunni. Hver og ein túlkar efniviðinn á sinn hátt. Í hópnum eru listakonurnar Ingibjörg Jóhannesdóttir-Inga, Ingibjörg Ósk Pétursdóttir-Imma, Magga Kristín Björnsdóttir, Mayflor Perez Cajes og Sólveig Eiríksdóttir.


Athugasemdir

Nýjast