28. október, 2010 - 12:43
Fréttir
Kona hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmd í fjögurra mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára fyrir
fjárdrátt. Konan var ákærð fyrir fjárdrátt, með því að hafa á tímabilinu frá nóvember 2008 til desember
2009, þegar hún gegndi stöðu gjaldkera Leikfélags Dalvíkur, dregið sér 1.669.653 krónur út af reikningi félagsins, sem hún
síðan notaði til eigin neyslu.
Konan játaði brot sín án undandráttar þegar við lögreglurannsókn málsins og endurgreiddi umrædda fjárhæð að
fullu hinn 10. mars sl. Ólafur Ólafsson héraðsdómari kvað upp dóminn.