Komu niður á kirkjugarðsvegg og mikinn öskuhaug

Ljósmynd: Hildur Gestsdóttir
Ljósmynd: Hildur Gestsdóttir

mth@vikubladid.is

Áhugaverðar minjar hafa komið í ljós við fornleifarannsóknir sem gerðar voru í tengslum við kirkjubyggingu í Grímsey. Hluti af undirbúningi kirkjubyggingar var fólginn í fornleifarannsóknum sem Minjastofnun Íslands fór fram á að gerðar áður en framkvæmdir hæfust. Fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands hafa því verið við rannsóknir í eyjunni undanfarna daga.

Meðal þess sem fornleifafræðingar hafa komið niður á er það sem talið er líklegur kirkjugarðsveggur suðvestarlega í kirkjustæðinu. Kirkjugarðsveggurinn bar þess merki að hafa verið viðhaldið um aldaskeið og er að líkindum í grunninn frá miðöldum eða fyrr. Innan kirkjugarðs sást einnig móta fyrir talsverðum fjölda af gröfum. Í kjölfar þessa fundar var ákveðið að hnika kirkjubyggunni eilítið til þannig að ný kirkja stæði utan þessa gamla kirkjugarðs og komast þannig hjá raski á honum.

 Fundu mikinn öskuhaug

Í stæði kirkunnar fannst einnig mikill öskuhaugur. Yngstu lög hans eru líklega frá 18.-19. öld en einnig fannst talsvert magn af eldri öskuhaugi sem gæti verið frá miðöldum. Öskuhaugar geyma gjarnan ómetanlegar upplýsingar um mataræði og lífsskilyrði á fyrri öldum og er vonast til að greining á beinum og gripum úr haugnum geti veitt mikilvægar upplýsingar um sögu eyjarinnar en þetta er í fyrsta sinn sem fornleifauppgröftur fer fram í Grímsey.


Athugasemdir

Nýjast