Kjörsókn á Akureyri náði ekki 30%

Kjörsókn á Akureyri í kosningum til stjórnlagaþings í dag, náði ekki 30%. Alls kusu 3.513 á Akureyri og þar af 343 utankjörfundar, sem þýðir 29,31% kjörsókn. Þetta er mun minni kjörsókn en í kosningunum um Icesace fyrr á árinu en þá var kjörsókn á Akureyri rúm 52%.    

Helga Eymundsdóttir formaður kjörstjórnar á Akureyri sagði að kosningarnar hefðu gengið mjög vel, enda hefðu allir komið undirbúnir á kjörstað. Hún sagði að kosningaþátttakan hefði samt mátt vera meiri. Sem fyrr segir kusu 3.513 á Akureyri og þar af kusu 54 í Hrísey og 23 í Grímsey.

Nýjast