KEA úthlutaði 15 milljónum í styrki til 52 aðila

Styrkhafar með viðurkenningarnar. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Styrkhafar með viðurkenningarnar. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson

KEA afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningarsjóði félagsins, sunnudaginn 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi. Þetta var í 86. skipti sem KEA veitir styrki úr sjóðnum. Auglýst var eftir styrkjum í október síðastliðnum og bárust 154 umsóknir.  Úthlutað var tæpum 15 milljónum króna til 52 aðila.

Styrkúthlutun tók til fjögurra flokka samkvæmt reglugerð sjóðsins: Menningar- og samfélagsverkefna, Rannsókna- og menntamála, ungra afreksmanna og Íþrótta- og æskulýðsfélaga. 

Í flokknum Menningar- og samfélagsverkefni hlutu 13 aðilar styrki, rúmlega 2,6 milljónir króna.

  • Félag harmonikuunnenda v/Eyjafjörð- Í tilefni 40 ára afmælis þess á næsta ári.
  • Kór Möðruvallaklausturskirkju- Til að fara í söngferð til Færeyja.
  • Barnakórar Akureyrarkirkju- Vegna flutnings tónverksins “Hver vill hugga krílið?” eftir Olivier Manoury. 
  • Helga Kvam- Vegna flutnings tónlistardagskránnar "María drottning dýrðar".
  • Karlakór Akureyrar-Geysir- Til að halda karlakóramótið "Hæ-tröllum“.
  • Gunnar Jónsson- Til að koma á fót gagnasafni um sögu Eyjafjarðarsveitar.
  • Safnasafnið á Svalbarðsströnd- Til viðgerðar á Gömlu-Búð, áður Kaupfélagi Svalbarðseyrar.
  • Útgerðarminjasafnið á Grenivík- Til reksturs safnsins.
  • Krabbameinsfélag Akureyrar- og nágrennis- Til að halda málþingið "Hrúturinn" sem er hluti af forvarnarstarfi og vitundarvakningu um krabbamein í karlmönnum.
  • Margrét Guðmundsdóttir og Þórarinn Hjartarson- Til að skrá og gefa út lífssögu Sigríðar á Tjörn.
  • Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður- Til útgáfu afmælisrits í tilefni 100 ára afmælis félagsins.
  • Menningarfélagið Norðri- Til að gera heimildarmynd um þjóðskáldið Matthías Jochumsson á Sigurhæðum.
  • Skógræktarfélag Eyfirðinga -Til að halda fræðslukvöld fyrir almenning um skógrækt.

Í flokknum Íþrótta- og æskulýðsmál hlutu 21 aðilar styrki, fyrir rúmlega 9 milljónir króna.

  • KA aðalstjórn
  • Þór aðalstjórn
  • Sundfélagið Óðinn
  • Bocciafélag Akureyrar
  • Ungmennafélagið Narfi
  • Knattspyrnudeild Dalvíkur
  • Golfklúbbur Akureyrar
  • Siglingaklúbburinn Nökkvi Akureyri
  • Íþróttafélagið Akur
  • Íþróttafélagið Magni
  • Ungmennafélagið Efling
  • Skíðafélag Dalvíkur
  • Íþróttafélagið Eik
  • Þór KA kvennabolti
  • KFUM og KFUK á Akureyri
  • Völsungur
  • Golfklúbbur Fjallabyggðar
  • Undirbúningsnefnd Andrésar Andarleikanna
  • Hestamannafélagið Léttir Akureyri
  • Ungmennafélagið Smárinn, Hörgársveit
  • Knattspyrnufélag Fjallabyggðar

Í flokknum Ungir afreksmenn, hlutu 14 aðilar styrk hver að upphæð kr 150.000.-

  • Aldís Kara Bergsdóttir, listskautar
  • Amanda Guðrún Bjarnadóttir, golf
  • Ásgeir Ingi Unnsteinsson, bogfimi
  • Benedikt Friðbjörnsson, snjóbretti
  • Dofri Vikar Bragason, júdó
  • Gunnar Aðalgeir Arason, íshokkí
  • Hildur Védís Heiðarsdóttir, alpaskíði
  • Júlía Rós Viðarsdóttir, listskautar
  • Karen Lind Helgadóttir, körfubolti
  • Karen María Sigurgeirsdóttir, knattspyrna
  • Karl Anton Löve, kraftlyftingar
  • Katla Björg Dagbjartsdóttir, alpaskíði
  • Marta María Jóhannsdóttir, listskautar
  • Svavar Ingi Sigmundsson, handbolti

Fjögur verkefni hlutu styrk í flokki Rannsókna- og menntamála, samtals tæplega 900 þúsund krónur.

  • Fablab- Til tækjakaupa
  • Verkmenntaskólinn á Akureyri- Vegna nemendasjóðs
  • Restart- Til rekstur vinnustofunnar
  • Bjarmahlíð miðstöð fyrir þolendur ofbeldis – Til rekstrar félagsins

 


Athugasemdir

Nýjast