Sigfús Helgason skrifaði undir samninginn fyrir hönd Þórs og Stefán Gunnlaugsson fyrir hönd KA. Þeir sögðu báðir þegar undirritun fór fram að þessir samningar væru afar þýðingarmiklir fyrir uppbyggingu og starf félaganna en virkir iðkendur beggja félaganna eru hátt í tvö þúsund talsins.
Halldór segir þetta vera framhald á þeim stuðningi sem KEA hefur veitt þessum íþróttafélögum hin síðari ár. "Við leggjum metnað okkar í að skila stórum hluta af afkomu okkar út í samfélagið til stuðnings góðra verka og til efla íþrótta- og æskulýðsstarf á félagssvæði KEA."