Katrín Björg Ríkarðsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til næstu fimm ára og tekur við embættinu af Kristínu Ástgeirsdóttur. Katrín Björg lauk M.Ed gráðu í menntunarfræðum með áherslu á kynjajafnrétti frá Háskólanum á Akureyri árið 2011. Áður hafði hún lokið menntun í uppeldis- og kennslufræðum frá sama skóla árið 1996 og BA prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1992.
Katrín hefur frá árinu 2014 verið aðstoðarmaður bæjarstjóra á Akureyri. Árin 2006 – 2014 var hún framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrar, 2003 – 2006 var hún jafnréttisráðgjafi Jafnréttis- og fjölskyldunefndar Akureyrar og árin 2000 – 2003 starfaði hún sem sérfræðingur hjá Jafnréttisstofu. Áður starfaði hún við Minjasafnið á Akureyri og við Héraðsskjalasafn bæjarins.