04. október, 2010 - 09:13
Fréttir
Karlmaður, sem réðst á annan mann í fjölbýlishúsi við Tjarnarlund á Akureyri í gærmorgun, er enn í haldi
lögreglunnar á Akureyri og verður yfirheyrður með morgninum. Sá er fyrir árásinni varð þurfti að leita læknishjálpar á
sjúkrahúsinu eftir árásina, en er ekki alvarlega slasaður.
Árásarmaðurinn var ekki viðræðuhæfur vegna annarslegs ástands í gær, en félaga hans var sleppt að yfirheyrslum yfir honum
loknum. Í fljótu bragði virðist sem árásin hafi verið tilefnislausog tilviljun ráðið á hvern var ráðist, segir á
visir.is.